Hef sagt þetta í mörg ár..!

Barn sem lærir ekki að "höndla" sjálfan sig og takast á við vanadmálin án lyfja munu halda áfram að sækjast í lyf sem lausn við vandamálum á efri árum. Börnin læra að lyfin séu skyndilausnin sem þau þurfa þar sem þau séu "brengluð" án þeirra. Sem betur fer er þetta ekki algilt en þetta kemur sterklega fram hjá sumum. Eitt frægt dæmi er Kurt Cobain sem glímdi við ýmiskonar kvilla sem barn. Hann var settur á ýmis lyf í sinni æsku og sagði sjálfur að rökrétt framhald á unglingsárunum voru harðari efni.

Þetta segir sig samt sjálft.. þú þarft gríðarlega mikinn viljastyrk og sterkan karakter til að geta bara hætt þessari skyndilausn sem lyfin eru.

Í Bandaríkjunum þar sem allt gerist auðvitað á öfgafullan hátt eru barnasálfræðingar farnir að greina sum þessara barna með þunglyndi eða geðhvarfasýki í stað ADHD og dæla í þau allt að 20 tegundum af lyfjum á dag. Það var fjallað um eitt slíkra mála í sjónvarpinu um daginn þar sem barnið lést vegna ofneyslu lyfja. Eftirá var móðirin spurð hvort hún héldi virkilega að barnið hefði verið þunglynt og hún svaraði því neitandi, hún var bara að fylgja leiðbeiningum læknanna! Þetta er komið algjöra vitleysu og íslendingar eiga eitt heimsmetið enn í því að dópa upp börnin sín.


mbl.is Segja lyfjagjöf við ofvirkni gagnslausa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þór Ólafsson

Vel sagt !!!

Ég veit t.d. að sykurneysla hjá mörgum veldur alvarlegum athyglisbrest...þegar ég hætta að mestu leiti að borða sykur fyrir 11 árum varð ég allt annar.

Svo sá ég grein í Fréttablaðinu fyrir nokkru um nokkur E-efni sem eru í matvælum og sælgæti sem valda óróleika í öllum og ofvirkni í börnum. Þetta voru um sex efni, m.a. rotvarnarefnið E-211 sem er meira að segja í sumu sódavatni. 

Breytt mataræði hefur ótrúleg áhrif...fólk ætti að reyna það lengi og vel áður en börnin eru dópuð og gerð að rítalín fíklum. Til að byrja með skydi forðast sykur og auka efni (m.a. E-efni) og borða sem ferskast og sem fjölbreyttast. Þetta tekur tíma, en heilbrigði og hamingja barnanna okkar er að veði.

Þessi síða hefur gjörbreytt mínum matarvenjum. Ég mæli með að skrá sig á póstlistann og fá sendar greinar og video sem hægt og rólega breyta matarvenjum mans: mercola.com

Jón Þór Ólafsson, 13.11.2007 kl. 10:54

2 Smámynd: Jón Þór Ólafsson

Mæli með þessu myndbandi um áhrif geðlyfja á börn, unglinga og samfélagið í heild:

Trailer: The Drugging of Our Children (Trailer)

Myndin í heild: The Drugging of our Children

Jón Þór Ólafsson, 13.11.2007 kl. 16:00

3 Smámynd: Jón Þór Ólafsson

Með fullri virðingu skil að rítalín og önnur lyf slá á einkennin, ég er bara með varúðarorð. Geðlyf eru örvæntingarfullt úrræði og engin varanleg lausn. Þvi skulum við aldrei gleyma. Höldum öll áfram að fræða okkur. Ég er búinn að læra mikið af þessari umræðu á hinum ýmsu blogsíðum.

T.d. að fyrirtækið se framleiðir Prozac gerði sínar eigin rannsóknir fyrir 15 árum og liggur undir grun fyrir að stinga þeim undir stól þegar í ljós kom að Prozac jók líkur á sjálfsmorðum og árásarhneigð. Sjá grein á CNN hér.

Jón Þór Ólafsson, 13.11.2007 kl. 19:02

4 Smámynd: Kári Magnússon

Mér viðrist að hegðun sem leiðir til ADHD greiningar byrji oftast í skóla. Mér skilst líka að ADHD tilfelli séu sjaldgæf á leikskólum en svo byrji vandamálin þegar komið er í skólann.

Væri þá ekki rétt að leita orsakanna þar?

Mér finnst ekkert skrítið að börn eigi við einbeitingarskort að stríða og líði illa í skóla, ekki frekar en að maður sem situr í fangelsi sé þunglyndur.

Vandinn er sá að skólakerfið er svo heilagt að það þykir betra að gefa börnum sterk lyf frá vafasömum lyfjaframleiðendum en að taka þau úr skóla eða breyta skólakerfinu.

Að taka barn úr skóla yrði lagt að jöfnu við að skera af því annan fótinn því að það myndi takmarka möguleika þeirra í framtíðinni. Samt vitum við vel að listamenn, bissnessnenn, og snillingar eins og Einstein voru tossar í skóla.

Ég vill árétta að ég geri mér grein fyrir að ADHD er til og er alverlegt. Mér sýnist bara að skólavist sé stór áhættuþáttur í að vera ranglega greindur með röskunina.

P.S með orðinu "skóli" í þessu innslagi á ég við skólakerfið eins og við þekkjum það.


Sjá umræðu hér

Kári Magnússon, 14.11.2007 kl. 15:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband