Flestar hljómsveitirnar sem voru starfandi á þessu tímabili 1995-2000 eru annaðhvort hættar eða í dvala. Írafár, Buttercup, Í svörtum fötum, Paparnir, Sóldögg, Greifarnir, 200.000 naglbítar, Skítamórall, Stuðmenn, SSSól, Land og synir, osfrv.
Að vísu eru Ný Dönsk og Á móti sól með einhverja smá starfssemi og Sálin hefur aldrei almennilega hætt en að öðru leyti hafa allar hljómsveitir lagt upp laupana án þess að neitt hafi komið í staðinn. Í dag eru mjög margar hljómsveitir á íslandi starfandi en þær einblína lang flestar á popp/rokk sungið á ensku fyrir erlendan markað. Kannski uppgötvuðu tónlistarmenn á íslandi að það væri frekar ömurlegt líf að lifa á ballbransanum hér heima.
Einnig er það mín skoðun að í því góðæri sem var hér ríkjandi frá aldamótum að fólk hafði í raun ekkert sérstaklega gaman af því að fara á ball eða tónleika almennt séð. Fólk fór frekar til útlanda eða sat heima glápandi á 200" flatskjáinn sinn með kokteilana og nuddtækin og nýjustu downloduðu DVD myndirnar.
Tími sveitaballahljómsveitanna, rokksins, pönksins, skemmtunar og almennrar lífsgleði virðist hafa verið uppi fyrst og fremst í síðustu kreppu milli 1975-1985 svo nú er bara að vona að listamenn fari að lifna til lífsins og fólk skelli sér á tónleika og böll eins og í denn.
Alíslenskt popp: skýrsla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Bloggar | 7.11.2008 | 13:24 (breytt kl. 13:33) | Facebook
Bloggvinir
- bjarnihardar
- brandarar
- dofri
- eirikurbergmann
- ea
- fridjon
- killjoker
- gummisteingrims
- gudnim
- lostintime
- gudrunarbirnu
- hallurg
- ingolfurasgeirjohannesson
- nosejob
- jensgud
- jogamagg
- jonasantonsson
- jonthorolafsson
- bisowich
- kiddip
- hrafnaspark
- omarragnarsson
- frisk
- sirrycoach
- zsigger
- athena
- stebbifr
- sveitavargur
- stormsker
- tharfagreinir
- vitinn
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
heh .. hún heitir Umsvif
Stefán Örn Viðarsson, 7.11.2008 kl. 14:40
Smá starfsemi? - Ný dönsk voru að gefa út plötu - Sálin er að halda upp á 20 ára ammli með bíómynd auk þess sem þessar þrjár hljómsveitir eru búnað eiga nokkur af mest spiluðu lögum ársins og spila fyrir þúsundir -
Guð forði okkur frá því að spýta í lófana... hehehehe
Guðmundur M Ásgeirsson, 7.11.2008 kl. 16:13
já takk fyrir það .. ný dönsk eru aðeins að gefa í núna, Sálin hefur alltaf tekið sér langar pásur og mun gera það núna eftir þessa törn. Væntanlega hefur hljómsveitin þín verið hvað duglegust undanfarið.. :)
Stefán Örn Viðarsson, 7.11.2008 kl. 16:19
jámms Stefán.. við gáfum nú líka út plötu á þessu ári... fór bara minna fyrir henni en öðrum :)
Kannski að við ættum að spýta í... hehe....!
En ég spái því að núna fer hljómsveitarlíf á Íslandi að springa aftur út... gerist það ekki alltaf í svona kreppuástandi?
Guðný Lára, 7.11.2008 kl. 16:24
Finnst erfitt að sjá að tónleikar hafi verið færri eða minna sóttir í góðærinu. Mér finnst hafa verið fullt af tónleikum undanfarin ár.
Var þetta ekki bara með öðru móti í góðærinu? Og er væntanlega enn.
Ég mundu halda að þetta sé eins í tónlistinni og í myndlistinni.
Í góðærinu var meiri innflutningur á erlendum böndum en áður. Í myndlistinni varð að sama skapi alþjóðleg sena í fyrsta skiptið á íslandi.
Maður hefur getað valið á milli þess að fara á tónleika með Incubus eða Clapton og Anima eða Agli Sæbjörnssyni. Að sama skapi mátti velja að fara á myndlistarsýningar með Shirin Neshat eða Matthew Barney og Gjörningaklúbbnum eða Agli Sæbjörnssyni.
Íslenskir myndlistarmenn, eins og tónlistarmenn, vildu brjóta einangrunina og komast á alþjóðlegt kort.
Það hefur tekist í báðum geirum.
Ransu, 11.11.2008 kl. 12:04
erlendar stórstjörnur eru reyndar undanskyldar þessu sem ég var að segja. Íslendingar hafa oftast flykkst á stór bönd eins og Metallica, Clapton og Muse. Ég var aðallega að tala um íslenskar hljómsveitir og minni aðila.
Stefán Örn Viðarsson, 21.11.2008 kl. 09:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.